Árbók

Arna, Margrét, María

27.05.2010 11:56:13 / arbok-amm

:)

hæhæ , við erum búnar að klára bókina og senda Hilmari allt svo hann geti farið yfir og séð hvort allt sé í lagi :) Hann ætlar að hringja í Margréti þegar hann er búin að því , svo það sé hægt að senda hana í prentun . Við erum búnar að fá pening frá eitthverjum nemendum og gengur það bara vel .

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.05.2010 14:20:45 / arbok-amm

...

Hæhæ :d, í dag þá fórum við upp í skóla til þess að láta Ásdísi fá það sem við erum komnar með svo hún geti farið yfir , en fundum hana ekki :/ . Þannig við héldum áfram að taka myndir , og eigum við sirka 30 krakka eftir að taka mynd af , og vonum við að við getum nú klárað það á mánud eða þriðjudag svo bókin komist timanlega í prentun. Við erum búnar að raða öllu upp sem við erum komnar með og gengur allt bara mjög vel :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.05.2010 11:28:47 / arbok-amm

:)

Hæ hæ :) í gær var myndataka af öllum árgangnum saman , og fengum við líka að taka myndir af hverjum bekk fyrir sig. Við náðum að taka þó nokkrar úti myndir af krökkunum en ekki af öllum því það byrjaði að rigna. 

Í dag þá ætlum við að reyna að ná myndum af sem flestum og byrja að raða því upp í tölvu sem komið er :). Annars vonumst við eftir góðu veðri svo við getum fengið sól á nokkrum myndum :d

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.05.2010 12:19:03 / arbok-amm

18.maí

Í dag héldum við áfram að taka myndir úti, þó það gangi nú ekki alveg nógu vel því enga sól fáum við.
Krakkarnir virðast ekki alveg skilja þegar við biðjum þau um að koma í myndatöku sem veldur óþægindum.
Við löguðum líka til spurningarnar og settum þær upp.
Við leggjum okkur allar fram til að setja upp góða bók og vonum að það fari að ganga reiprennandi.

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.05.2010 12:36:00 / arbok-amm

myndataka

Í dag kláruðum við að taka myndir inni af þeim sem ekki var búið að taka myndir af. 
Svo byrjuðum við á því að taka myndir úti , og höldum svo áfram með það í vikuni.

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.05.2010 11:17:39 / BlogCentral

Nýtt bloggsvæði á BlogCentral

Eigandi þessa nýja bloggs hefur ekki gefið út fyrstu bloggfærsluna sína. Viðkomandi er án efa í óða önn að velja sér flott útlit, aukahluti, hlaða upp myndum og semja meistaraverk til að færa á spjöld sögunnar. Við bjóðum viðkomandi að sjálfsögðu velkominn á BlogCentral!

» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 1531
Gamalt blogg